Thomsen

Velkomin(n)

26.03.2007 20:11:54 / grimur

Hér sé líf og fjör

Já ég var að koma frá Danmörku þar sem að ég kom við í Óðinsvéum og Kaupmannahöfn, bongoblíða og vor í lofti, fjandi góð afmælisferð þar á ferð. Fórum á fimmtudag og komum heim í gær, sunnudag. Ég þakka þeim sem sendu mér afmæliskveðju í sms á fimmtudaginn, þau skiluðu sér aldeilis í einum haug þegar ég kveikti á símtækinu við heimkomuna í gær. Ég nennti með engu móti að vera að svara þeim og því þakka ég hér með fyrir mig.

Senn líður að páskum. Stefnan er tekin á norðurferð, ef manni tekst að klára og skila af sér verkefnum, og ná að stoppa í 3-4 daga og þeysa svo til höfuðborgarinnar aftur og hella sér í próflestur því fyrsta próf mundi vera þann 13 apríl. Svo tekur við ný vinna með sumrinu, verð á verkfræðistofunni VGK-Hönnun hér í Reykjavík og lýst mér vel á það.

 

Helvítis þvottagrindin gafst upp um daginn og lagðist saman á gólfið og harðneytaði að rísa aftur á fætur. Ég sagði henni að hún væri fífl og hún fussaði einhverjum ósama út úr sér sem að ég skyldi hvorki upp né niður í, skömmu síðar lést hún........


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 10:41:43 / grimur

Próflestur!

jú þá er próftíðin byrjuð og veturkonungur mættur í höfuðborgina sem er vel!

Hér er ný myndasíða! http://www.flickr.com/photos/arngrimur


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 15:01:39 / grimur

Djöfull ertu feitur!!

Já alltaf lærir maður nú eitthvað nýtt. Makalaust hvað búið er að snúa öllu við í okkar ástkæra móðurmáli, íslenskunni! Ef ég t.d. segi við einhvern eða um einhvern að hann sé feitur þá þýðir það ekki endilega að hann sé í þungavigtarflokki, nei nei, það getur einfaldlega þýtt það að mér þyki viðkomandi bara leiðinlegur!!!! Já, þetta segi ég satt!! Svona tala unglingarnir hér í höfuðborginni.

Dálítið skrýtið finnst mér að orðið feitur sé notað þarna í frekar neikvæðri merkingu  því eins og t.d. í dönsku ef maður segir, "det er meget fedt", er það eitthvað sem mannir þykir alveg hreint magnað og er því frekar jákvætt. Þetta held ég að hafi líka tíðkast í íslenskunni, feitt = geðveikt.

Svona er nú það, feitur = leiðinlegur!

Ég fór á Kárahnjúka um daginn, hætti mér ekki út í umræðu um þá núna en hér eru myndir. https://grimur.smugmug.com/gallery/1984837


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 00:21:23 / grimur

Thja!!

Nú er orðið annsi stutt eftir af sumrinu, vika í skólann og ég þrykki suður á föstudaginn. Þar tekur við mér endalaus hamingja og er það vel! :)

Síðan ég ritaði hér síðast hef ég farið í eitt brúðkaup enn og var þar einnig etið og sötrað þar til yðrin ætluðu að flæða um öll gólf. Þar sá ég reyndar um ljósmyndun og var því sötrinu stillt í hóf.

Ég var að bæta við slatta af myndum úr hjólasportinu og er um að gera að kíkja á það, það held ég nú!!

http://grimur.smugmug.com/Motorsport


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.07.2006 00:08:37 / grimur

Hér sé líf!!!

Eitthvað er það nú minna á þessari vesælu síðu en það er nú bara eðlilegt. Af mér er lítið að frétta, það helsta sem að maður aðhefst þessa dagana er vinna og mótorhjólaakstur. Í eitt brúðkaup skrapp ég reyndar í um daginn og var það mikið fjör en þar át maður á sig gat og drakk, var það vel!

Ég dag fékk ég afhenta íbúð og tók hann Árni við lyklunum fyrir mig og er íbúðinni lýst sem "glæsi höll" og hlakka ég mikið til að koma mér þar fyrir í ágúst.

Ég ákvað að setja inn myndir sem ég tók í vor og myndir frá Endúrókeppni sem haldin var 1.júlí, kíkið endilega hér.

http://grimur.smugmug.com/

Svo mæli ég eindregið með að þið kíkið á þennan link, þar er að finna myndir frá Dyngjufjallatúr okkar Skjaldar um daginn sem var annsi hreint magnaður þrátt fyrir afar vafasamt ástand "sumra" í upphafi ferðar! :)

http://www.pbase.com/skjoldur/2006_07_02


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 01:10:42 / grimur

obbosíí........

Ja nú eru tvær vikur síðan maður kláraði skólann og nú er ég staddur á Akureyri þar sem ég er að vinna og bý hjá Skjölla frænda mínum og frú þessa dagana. Það er annsi fínt þar sem ég var að kaupa mér mótorhjól og erum við frændur nú saman í þessu rugli! ;) Fyrsta túrinn fórum við í dag inn í Fnjóskadal og gerðum við okkur nú litlar vonir um að geta keyrt mikið fyrir snjóþyngslum sem eru einmitt allsráðandi á norðurlandi þessa dagana en þegar í dalinn var komið var nú alls ekki svo mikill snjór og náðum við að keyra um 75 km og var það hreint annsi magnað!

Ég setti inn myndir frá herlegheitunum....

http://grimur.smugmug.com/gallery/1499349


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 13:56:49 / grimur

Mezzoforte!

Fór á annsi hreint góða tónleika á Nasa síðasta fimmtudagskvöld fyrir utan reykingapest og aðrar eiturgufur sem að sveimuðu um salinn. Þar var hin eiturmagnaða hljómsveit Mezzoforte að trylla lýðinn og það er nú ekki á hverjum degi hérna á Íslandi sem að maður sér aðra eins snillinga spila. Allir eru þeir nú góðir en sérstaklega vil ég nefna Jóhann á bassanum og Gulla á trommum, þetta eru menn á heimsmælikvarða.

Annars er það nú bara rólegt í skólanum, maður situr bara við tölvuna og teiknar og teiknar og vanalega endar það með ágætis teikningu á blaði, já já!!

Nú er mál að fara út í sólina og mynda og jafnvel þrífa bíl, það held ég nú!


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 13:31:35 / grimur

23. apríl........

Í dag hefði hann Ari Freyr vinur minn orðið 24 ára gamall ef örlögin hefðu ekki gripið í taumana!!

Þótt ég sé látinn,

harmið mig ekki með tárum,

hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta.

Ég er svo nærri,

að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur,

en þegar þið hlægjið og syngjið með glöðum hug

lyftist sál mín upp í móti til ljóssins.

Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur,

og ég tek þátt í gleði ykkar.

Blessuð sé minning hans!

 

Nú eru prófin búin og næst á dagskrá er áfangi sem kenndur er á fullu í 3 vikur, það verður annsi strembið. Hef lítið sem ekkert gert síðan á miðvikudaginn, en þá var síðasta prófið, reyndar var haldið upp á það með smá öli en engu að síður lítið verið gert síðustu daga. Í gær tók ég reyndar fram reiðhjólið og hjólaði Ægisíðuna og hafði með myndavélina. Það var fínasta veður fyrir utan rokið sem alltaf er hér þannig að vindbarinn varð maður og því var annsi gott að koma við hjá honum Árna í bakaleiðinni og fá sér kaffisopa.

Setti inn myndir!!!

http://grimur.smugmug.com/gallery/1390330

http://grimur.smugmug.com/gallery/1390836


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 17:03:54 / grimur

Prófin nálgast!!!

Jæja þá er maður sestur að skólanum því prófin eru að skella á, 3 próf fyrir páska og 1 eftir páska. Alveg vonlaust að hafa allan þennan snjó þarna fyrir norðan þegar maður þarf að vera að læra í páskafríinu, hver stendur eiginlega fyrir þessu?? Þvílíkt og annað eins............... Í vikunni birtist mynd frá mér í sjónvarpsþætti á Skjá einum, gaman af því!!!!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 16:46:23 / grimur

Mjög gott!

Þá er fjandi góð norðurferð að baki sem samanstóð af snjó, skíðum, snjóbrettum, hæki, ölkrúsum, heitum potti og mótorhjólum!!

Setti inn myndir frá helginni!!!

http://grimur.smugmug.com/gallery/1294514


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 17:12:06 / grimur

Á norðurleið!!!!

Allt í einu er ég nú bara á leiðinni norður!! Já já, helvítið hann Kiddi búin að plata mig norður og stefnan tekin á Hliðarfjall alla helgina, þar er telemark festival og mikið húllumhæ........ Leggjum þrír af stað eldsnemma í fyrramálið þannig að við ættum að ná 3 dögum í fjallinu, ekki amalegt það!

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 10:27:12 / grimur

Thja!!

Jæja, hvað skal segja!!? Lífið gengur sinn vanagang, skóli, borða, sofa. Er reyndar einn í kotinu þessa dagana því sambýlismennirnir eru í afslöppun á Kúbu, ja afslöppun, taka sjálfsagt hraustlega á því ef ég þekki þá rétt.

Nú eru ekki nema rétt tæpar þrjár vikur í lokapróf sem er annsi stutt, 3 próf fyrir páska og 1 eftir páska sem þýðir að páskafríið verður ekki mikið. Eiginlega bara ekki neitt!! Svo er maður bara í atvinnuleit hér í höfðuborginn fyrir sumarið og einhver hreyfing er nú á íbúðarmálum en það kemur nú allt í ljós síðar.

Á mánudaginn var fór ég á snjóbretti, já merkilegt nok, og það í Bljáfjöllum. Það bara mok snjóaði allt í einu í Bláfjöllum um helgina og á mánudaginn var svo bara logn, sól og púður. Þetta þykir mér alveg stórmerkilegt, á föstudaginni var ekki snjókorn á svæðinu en svo allt í einu bara kviss pang! Hér getiði séð myndir af herlegheitunum http://grimur.smugmug.com/gallery/1277278


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 16:51:48 / grimur

Gleði, gleði!!

Fínn dagur í dag hér í höfuðborginni. Sól og blíða og logn, gátum nú ekki hamið okkur hér í skólanum um hádegi þannig að við skelltum okkur í golf og slóum nokkur hundruð bolta. Það var annsi hressandi í veðurblíðunni og komum við annsi ferskir til baka í burðarþolsreikningana. Enn er veðrið gott og dauð langar mig út að mynda, verð þá sennilega að drífa mig því klukkan er orðin margt.

Á föstudaginn blótuðum við félagarnir þorrann, hið árlega þorrablot okkar var einmitt haldið heima hjá okkur og tókst með afburðum vel. Hákarl, brennivín og pungar að sjálfsögðu!! Í tilefni að þeirri samkunndu okkar set ég inn miklar gleði myndir af okkur félögunum og spússum!!! Njótið vel!! ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.01.2006 16:57:12 / grimur

Myndir

1. skammtur af Kanadamyndum komin inn og sá næsti er væntanlegur......


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Dagsetning
9. febrúar 2010