Thomsen

Velkomin(n)

13.02.2006 16:51:48 / grimur

Gleði, gleði!!

Fínn dagur í dag hér í höfuðborginni. Sól og blíða og logn, gátum nú ekki hamið okkur hér í skólanum um hádegi þannig að við skelltum okkur í golf og slóum nokkur hundruð bolta. Það var annsi hressandi í veðurblíðunni og komum við annsi ferskir til baka í burðarþolsreikningana. Enn er veðrið gott og dauð langar mig út að mynda, verð þá sennilega að drífa mig því klukkan er orðin margt.

Á föstudaginn blótuðum við félagarnir þorrann, hið árlega þorrablot okkar var einmitt haldið heima hjá okkur og tókst með afburðum vel. Hákarl, brennivín og pungar að sjálfsögðu!! Í tilefni að þeirri samkunndu okkar set ég inn miklar gleði myndir af okkur félögunum og spússum!!! Njótið vel!! ;)

Sigrún skrifaði
Greinilega mikið fjör á þorrablótinu.... Bestu kveðjur úr kuldanum og snjónum í Halifax Sigrún
Eiki skrifaði
Koma svo með fréttir kallinn!

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagsetning
21. mars 2010