Í dag hefði hann Ari Freyr vinur minn orðið 24 ára gamall
ef örlögin hefðu ekki gripið í taumana!!
Þótt ég sé látinn,
harmið mig ekki með tárum,
hugsið ekki um dauðann með harmi og
ótta.
Ég er svo nærri,
að hvert eitt ykkar tár snertir mig og
kvelur,
en þegar þið hlægjið og syngjið með glöðum
hug
lyftist sál mín upp í móti til
ljóssins.
Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið
gefur,
og ég tek þátt í gleði ykkar.
Blessuð sé minning hans!
Nú eru prófin búin og næst á dagskrá er áfangi sem kenndur
er á fullu í 3 vikur, það verður annsi strembið. Hef lítið sem
ekkert gert síðan á miðvikudaginn, en þá var síðasta prófið,
reyndar var haldið upp á það með smá öli en engu að síður lítið
verið gert síðustu daga. Í gær tók ég reyndar fram reiðhjólið og
hjólaði Ægisíðuna og hafði með myndavélina. Það var fínasta veður
fyrir utan rokið sem alltaf er hér þannig að vindbarinn varð maður
og því var annsi gott að koma við hjá honum Árna í bakaleiðinni og
fá sér kaffisopa.
Setti inn myndir!!!
http://grimur.smugmug.com/gallery/1390330
http://grimur.smugmug.com/gallery/1390836